Tóftarar

27 desember 2007

Ný heimasíða hjá Tófturum

Tóftarar hafa opnað nýja og spennandi heimasíðu: www.toftarar.is

Einnig er hægt að sækja um vefpóst með léninu @toftarar.is.
Áhugasamir sendi póst á toftari@toftarar.is.

Þeir sem vilja halda sínum gömlu póstföngum en vilja fá dreifipóst frá Tófturum eru beðnir um að senda póst á sama netfang svo að hægt sé að skrá þessi netföng á dreifilistann.

Kveðja
Tóftari

04 maí 2007

Vorferð í Þórsmörk helgina 18.-20 maí 2007

Þá er komið að vorverkunum við Skagfjörðsskála. Verkefnalistinn er ekki fullkláraður sem stendur, en gera má ráð fyrir ýmiskonar málningarvinnu, stígagerð og fleira.

Uppstigningardagur er þann 17., þannig að þau ykkar sem eiga erfitt með að hemja sig, geta tekið snemma til hendinni og varið fleiri dögum í Þórsmerkurparadís.

Sem fyrr er æskilegt að menn tilkynni þátttöku til Helgu Garðars með því að senda tölvupóst á netfangið fi@fi.is


Hlökkum til að sjá ykkur
Nemmdin

11 mars 2007

Páskar 2007

Vegna fjölda áskoranna hafa staðarhaldarar í Hólaskógi ákveðið að hafa opið hús um páskana fyrir Tóftara og vini þeirra. Nóttin verður á 1000 kr fyrir fullorðin og 500 kr fyrir börn á aldrinum 6 - 20 ára. Engin sérstök skipulögð dagsskrá verður í boði, en heyrst hefur að áhugi sé á rannsóknarleiðangri inn á hálendið. Eins hafa nokkrir Tóftarar af yngri kynslóðinni beðið óþreyjufullir eftir að keppnistímabilið í hinum ýmsu Tóftaraleikjum hefjist og má þá þar nefna Útilegumannaleik, Kubbur og Boccia. Eflaust má líka grípa í spil eða skák viðri ekki til útileikja.

Vinsamlegast staðfestið komu ykkar með því að senda tölvupóst á obyggdir@obyggdaferdir.is eða með því að hringja í Unnar í 6612503 eða í Helga í síma 6612504 og tilgreinið hvaða nætur þið viljið gista.

Hlökkum til að sjá sem flesta.

06 febrúar 2007

Þorrafélagsvist

Úrslit í félagsvist haldið á þorrablóti Tóftara í Hólaskjóli 3. febrúar 2007

172 Daði Geir
171 Samúela Unnsteina
170 Inga Rósa
170 Ingibjörg Kolbeins
170 Pálmi
169 Bjarni Andrés
164 Evelyn
164 Hörður Jóns
162 Raggi
159 Trausti Páls
158 Vigdís
157 Guðjón Vigfúss
153 Harpa Rós
152 Auðunn
151 Geir Sig
150 Þórunn Andrés
149 Helga Andrés
148 Birna
144 Sigga Sig
143 Valgerður Auðuns
143 Baldur Örn
143 Gestur
141 Geir Elías
141 Þór Sig

01 febrúar 2007

Dagskrá Þorrablóts Tóftara 2007

Staðarhaldarar hafa gert samning við sérvalinn byrgja um matarinnkaup fyrir þorrablót Tóftara. Þessi heildsali mun einnig sjá um að vera yfirkokkur á blótinu.

Matseðillinn hljómar eftirfarandi.


Staðlaður Þorramatur
Ekta íslensk kjötsúpa
Kjöt í Karrý (fyrir þá sem ekki leggja í Þorramatinn)
Spaghetti Bolognese fyrir yngri kynslóðina


Innkaupinn voru miðuð við tíu tugi og ætti þar af leiðandi duga vel fyrir alla veislugesti. Verðið er 1000 kr. fyrir fullorðinn og 500 fyrir börn yngri en 16 ára.

Gaman væri ef einhverjir sjálfboðaliðar byðu sig fram í pönnuköku- eða vöflubakstur til að hafa með kaffinu seinni part laugardags. Sjálfboðaliðar verða sjálfir að útvega hráefni. Þrjú vöflujárn eru á staðnum, en ekki er vitað um pönnu til pönnukökugerðar.


Aðrir dagskrárliðir fyrir utan matarát eru


Brenna á laugardagskvöldi ef veður leyfir
Þorrabikarkeppni Tóftara í félagsvist. (Takið með ykkur spilastokka)
Skoðaðar gamlar og nýjar myndir. Skjávarpi, sýningarvél og sýningartjald verður á staðnum.
Heimatilbúin skemmtiatriði.
Og annað sem Tófturum dettur í hug.


Búist er við mjög góðri þáttöku og hafa nú þegar nokkrir fyrstu kynslóðar Tóftarar boðað komu sína.

Hlökkum til að sjá ykkur öll
Þorrablótsnefndin

14 janúar 2007

Þorrablót 2007

Þá er komið að því að halda hefðinni við. Þorrablótsnefnd Tóftara hefur ákveðið að halda hið árlega Tóftarablót þann 2.-4. febrúar. Notast verður við sama húsakost og í fyrra. Fyrir þá sem ekki muna eftir síðasta blóti þá var það haldið í hinum trjálausa Hólaskógi rétt norðan við Búrfell í Þjórsárdal. Húsið tekur um 80 manns í gistingu og eru tveir matsalir. Malbikaður vegur er nær alla leiðina og sé ófært síðustu metrana munu vaskir Jeppatóftarar vakta afleggjarann og flytja súrmatsóða Tóftara síðasta spölinn að blótstað.

Blóttollur mun vera 1000 kr. nóttin fyrir hvern þann Tóftara sem eigi hefur lifað skemur er nemur tveimur tugum vetra (fyrir unglinga og útlendinga: 20 ára og eldri þurfa að borga blóttoll). Innifalið er eldunar-, böðunar- og gistiaðstaða.

Blótið verður með svipuðu sniði og í fyrra, þó eru hugmyndir á nýjungum vel þegnar. Ýmislegt verður á boðstólnum fyrir yngri kynslóðina. Þó munu veðurguðirnir stýra úrvalinu. Hin geysivinsæla föndurstund undir leiðsögn þolinmæðra uppeldisfræðinga verður á sínum stað og mun blótsnefndin útvega nauðsynlegan varning og verkfæri. Ef veður leyfir munu staðarhaldarar útbúa skautasvell og leggja gönguskíðabraut sé nauðsynlegur jarðvegur til staðar. Eins verður reynt að hafa eitthvað fyrir alla aldurshópa og eru eldri Tóftarar hvattir sérstaklega til að mæta.

Vinsælt væri ef sem flestar fjölskyldur kæmu með sitt eigið skemmtiatriði fyrir kvöldvökuna, sem heppnaðist með eindæmum vel á síðasta ári. Áætlað er þó að ró færist ekki yfir blótstað fyrr en upp úr miðnætti. Hláturinn lengir lífið.

Eitthvað fór lítið fyrir dansleik á síðasta blóti, en mun skortur á tónlist átt þar einhverja sök frekar en fótafimi Tóftara eins og sjá mátti i brúðkaupsveislu Hörpu og Auðuns. Stefnt er á að bæta úr þessu og eru sjálfboðaliðar beðnir um að mæta með sína tónlist.

Skráning fer fram hjá Siggu Garðars í síma: 8483538 eða hjá Evelyn í síma 5516112.

Benda má á að staðarhaldarnir eru mun stæltari og kynþokkafyllri en í fyrra. Reyna má greiða með blíðu, en óvíst er hvort gjaldið hækki ekki bara við það. Allavega verður posi á staðnum.

Hlökkum til að sjá sem flesta!
Sjálfskipaða Þorrablótsnefndin

18 október 2006

Brúðkaupsafmæli Hörpu Rósar og Auðuns

Þann 27. október n.k. eigum við hjónin 16 ára brúðkaupsafmæli. Af því tilefni (og líka vegna þess að Auðunn verður fertugur 20. okt. og Harpa Rós kemur fast á hæla hans 2. nóv.) ætlum við að efna til veislu. Veislan verður haldin í Víkingasalnum í Básnum, Efstalandi í Ölfusi föstudaginn 27. okt. og mun hún hefjast kl. 20. Fyrir þá sem ekki eru staðkunnugir er vísað til korts hér fyrir neðan.

Ekki værum við nú að standa í þessu nema vegna þess að við eigum svo mikið af veisluglöðu samferðarfólki, vinum og ættingjum, sem gaman er að skemmta sér með. Boðið verður upp á einhverjar veitingar og stiginn dans eins og hver getur. Veislugestum verður e.t.v. heimilað að tjá sig með orði eða athöfnum sér og/eða öðrum til skemmtunar. Þrátt fyrir barngæsku og barnalán meðal veislugesta, er veislan ekki talin við hæfi barna.

Gaman væri ef þið sjáið ykkur fært að styðja okkur yfir þennan þröskuldinn með nærveru ykkar. Af ástæðum sem ekki er unnt að upplýsa hér, væri kostur ef þið látið vita um þátttöku fyrir 22. okt. í heimasíma 483-4765, GSM síma 899-5487 eða með tölvupósti agudjonsson@kpmg.is

Bestu kveðjur,
Auðunn og Harpa Rós

16 október 2006

Frágangsferð í Langadal

Föstudaginn 13. október fór hluti Tóftara inn í Þórsmörk. Það var ekki happadagur sumra, amk ekki Trausta, en þetta var tveggja bíla dagur fyrir hann. Fyrst fór heddpakkningin í bílnum hans en svo gleymdist víst að setja í framdrifið á Ferðafélagsbílnum sem hann keyrði eftir það áður en farið var í beljandi Krossánna, sem hafði eitthvað breytt sér. Það þurfti örugglega að þvo bílinn, hvort eð er, amk var hann smá stund í ánni. Stopp.

Föstudagskvöldið og nóttina notuðu veðurguðirnir til að klára úr sér svo þeir gætu haldið aðeins í sér á laugardeginum.

Á laugardeginum bættist í hópinn, þannig að allt í allt voru um 40 Tóftarar að ganga frá, mála rúmbotna, skipta um brotið gler, leggja grashellur á göngustíg og Baldvin að leggja sig.

Á sunnudeginum var farið í gönguferð upp í Gluggahelli og eftir hádegi var keppt í hinu reglubundnu tóftaraboccia, og voru úrslitin þau að Unnar rétt marði Gest í úrslitum. Að því loknu var fánastöngin felld og þar með var sumrinu lokið.

25 ágúst 2006

Þjórsárdalsferðin

Góð tjaldferð í hinn frábæra Þjórsárdal.

Fyrst á svæðið voru Bói ljóti og Pascual gula samt dætrunum röndóttu Matthildi og Katrínu.

Þau földu tjaldið sitt doppótta svo vel að þau fundust ekki þegar Vigfús Þór súri og Vallý skrítna komu ásamt Erik asnalega og Þórunni Helgu svörtu og börnunum.
Bjarni dauði, Stefanía góða og Kolbrún fallega rákust á Vigfús Þór sveittan, Erik myglaðan og co. Þar sem þau voru að leita að stórbeinóttu tjaldstæði. Ákveðið var að tjalda nærri gráum kamri, því Fúsi hafði keypt stórkostlegt kjöt sem var komið á síðasta söludag.

Þá fréttist af Þórunni tómu, Samúel stóra og sonunum syfjulegu. Þau höfðu rekist á Bóa hárfagra og fjölskyldu. Baldur stórfenglegi og Daði andstyggilegi voru skildir eftir með A-tjaldið nefstóra.

Um nóttina héldu nágrannarnir örvhentu vöku fyrir Stefaníu andfúlu og því var ákveðið að vakna snemma og spila hina feitu Prúðuleikara og hefna sín. En það var fyrst þegar Þórunn Helga hundalega leysti vind að hinir mjóu nágrannar sáu sitt óvænna og pökkuðu saman.

Laust eftir dagrenningu birtust Trausti svínslegi og fjölskyldan slánalega og Gunnar fjarskyldi og synirnir ljótu. Skömmu síðar komu Þórunn fýlulega og Elli granni.
Þá var spilað smá frekt Kubb og loks ákveðið að fara í rétthentan bíltúr að Hjálparfossi og Stöng. Hinn kyngimagnaði flokkur gekk svo inn Gjána þar sem Trausti tannstóri afmælisbarn, Baldur fulli, Bói ilmandi og Katrín fyndna fóru á bak við fossinn andstutta og urðu blaut.

Næst var spænt til baka í svöngu tjöldin og hugað að loðinni matargerð. Þegar verið var að leggja lokahönd á yndislegar kræsingarnar birtist Vigdís sadda. Hús sagði að Gestur blauti væri á leiðinni, en hann er þurr verkfræðingur og þeir eru alltaf seinir.

Í kvöld er stefnt á kvikindislegan kubb og skræpóttan útilegumannaleik.

Tóftarar eru lang- lúðalegastir.

23 ágúst 2006

Ofurtóftaraferð í Þjórsárver 1-3. september

Kolvitlausir ferðatóftarar hafa ákveðið að fá útrás uppi á Skeiðamannafrétti og nágrenni þann 1.-3. september. Stefnan er tekin á Þjórsárver. Gist verður í Bjarnalækjarbotnum, sem er þokkalegasta hús, en rétt er að taka með sér það sem til þarf, dýnur og svefnpoka og eldunargræjur.
Farið verður frá Húsatóftum á föstudagskvöldið kl 20.
endilega látið Þór vita um þátttöku í síma 861 9895 eða í tölvupósti thors@fjoltengi.is
Þessi ferð er ætluð háfættari jeppum, þar sem líklegast verður frekar gróft undir dekki.

10 ágúst 2006

Haustferð í Langadal 13-15. október

Búið er að taka helgina 13-15. október frá fyrir frágangsferð Tóftara í Þórsmörk.

Til að hægt sé að áætla vistir, endilega tilkynnið þátttöku til Helgu Garðars á netfangið fi@fi.is

08 ágúst 2006

Tjaldferð í Þjórsárdal

Næstu helgi, 11. - 13. ágúst verður farið í hina hefðbundnu helgartjaldferð Tóftara, helgina eftir verslunarmannahelgi. Tjaldað verður á góðum stað við Sandá og undirbúningur fyrir Vikingkubbkeppnina hefst þegar í stað, en keppt verður á laugardaginn.

06 ágúst 2006

Nýjasti Tóftarinn

Enn fjölgar Tófturum. Nú síðast stóðu Heimir Jóns og Jóhanna Kristín fyrir fjölguninni en þeim fæddist 18 marka drengur þann 18. júlí. Heilsast þeim öllum vel, drengurinn var 55 cm langur, en er líklegast enn lengri í dag. Nú eru 117 afkomendur Þórunnar og Vigfúsar á lífi og Tóftarar (afkomendurnir og viðhengi þeirra) alls um 156, eða 0,05% af öllum Íslendingum.

16 júní 2006

Fortóftarar eiga afmæli

Guðjón varð sjötugur 15. júní og Jón þann 19. júní.
TIL HAMINGJU !

14 júní 2006

Nýr Tóftari

Nýjasti Tóftarinn fæddist 11. júní 2006.

Auðvitað er hann kominn með heimasíðu, gestsson.blogspot.com

Myndir úr Þórsmerkurferð

Þau sem tóku myndir í vorferðinni í Þórsmörk, endilega sendið þær á gestur@odr.is svo hægt sé að setja þær á lokuðu síðuna.

24 maí 2006

Þórsmerkurferð 19.-21. maí 2006

Það má segja að veðurguðirnir hafi enn verið að sleikja sárin eftir að Silvía Night datt úr Eurovision og síðan hreinlega hrunið í það með Finnunum á laugardagskveldinu. Það má sem sagt segja að kalt hafi verið í veðri og glöggir menn sáu snjókorn falla á allt og alla (úr jólalagi).

Veðrið stöðvaði þó ekki vinnuglaða Tóftara, sem gengu hreinlega berserksgang. Terpentínuskortur tafði eilítið fyrir málurunum, en um leið og hún lét sjá sig var ekkert sem gat stöðvað penslana. Orkan og spennan sem hlóðst upp sökum terpentínuskorts var svo yfirgengileg að göngubrúin yfir Krossá var afgreidd á örskotsstundu. Reyndist það mikið áhættuverk og ekki er enn útséð með það hvort penslaóðir Tóftarar hafi komist heilir frá því verki. Annars má segja að nánast öll verkin hafi klárast á verkefnalistanum, en þó held ég að gleymst hafi að losa skrúfuna á suðurlofti. Við Tóftarar verðum nú að hafa eitthvað að gera í haust.



Þrifnaður verður seint talinn einn af sterkleikum Tóftara, en þegar Tóftara á í hlut þá eru allir hlutir afgreiddir með stæl. Ámóta þrifnaður hefur ekki sést síðan í Ajax auglýsingu á áttunda áratugnum. Ekki dugði Skagfjörðsskáli til. Það má segja að ekki sjáist pappírssnifsi eða bjórdós á milli Krossár og Snorraríkis að meðtöldum Valahnjúk.

Ekki sást til trölla í þetta skiptið, en sögur herma að skessan eigi von á sér á næstu dögum. Þó gæti verið að ást þeirra á evrópskum söng hafi dregið þau til byggða. Glöggvir Tóftarar tóku samt eftir því að ekki voru öll kurl komin til grafar varðandi tilurð Tóftaragils. Þóttust þeir sjá móta fyrir fótspori eða hælfari tröllkarlsins og áttu jarðfræðitóftararnir erfitt með að hrekja þessa tilgátu.

Á laugardagskvöldinu var haldin heljarinnar grillveisla og að henni lokinni var farið í knattleik. Munu hinir yngri Tóftarar skorað á þá eldri. Ungu Tóftararnir nutu aðstoðar skálavarðar og gott ef ekki framkvæmdastjóri FÍ hafi aðstoðað þau eilítið. Hörður hafði greinilega fengið sér eitthvert meðal. Allavega þá skipaði hann sér í hóp með þeim yngri. Kannski bara grái fiðringurinn. Mjótt var á munum og skildu liðin jöfn 3-2. Að loknum knattleik var farið í hefðbundinn útilegumannaleik. Óljóst er hver sigraði, en sumir Tóftarar áttu við stirðleika að stríða morguninn eftir, en hafragrauturinn kom þeim þó aftur af stað.

Ungir Tóftarar reyndu fyrir sér í klifurlistinni, en Davíð Óskar var sá eini sem sigraðist á Snorraríki. Aðrir voru þó nærri og kæmi mér það ekki á óvart ef einhverjir fleiri myndu kíkja út úr hellinum í haust.

Mætingin var með besta móti og má segja að fulltrúar allra kynslóða hafi mætt. Ekki komu þó allir á sama tíma og spurðist sú saga út að Trausti ætlaði að stela senunni með sterkri innkomu. Þá var ekki eingögnu talað um hvernig hann myndi afgreiða Krossá, heldur líka hvort hann myndi klæðast sínum einstaka reimabol. Vonbrigðin leyndu sér ekki á svip kvennana þegar svo var ekki og Krossáin náði ekki einu sinni uppá framrúðu. Það er spurning hvort móðir hans sem kom með honum, hafi haft einhver áhrif. Eins var ánægjulegt að Árný Helga og Pálmi skyldu koma með nýjasta Tóftarann. Bjarni Andrésson og fjölskylda komu og kíktu við á sunnudeginum. Bjarni gerði nátturulega ekkert að viti eins og sönnum merkistóftara sæmir.

15 maí 2006

Áríðandi - Skráning í Þórsmerkurferð

Sökum gríðarlegs áhuga á Þórsmerkurferðinni næstu helgi er æskilegt að menn tilkynni sig og fjölskyldumeðlimi sína hjá Helgu Garðarsdóttur.

Best er að senda henni tölvupóst á netfangið: fi@fi.is

03 maí 2006

Vinnuhelgi í Þórsmörk helgina 19.-21.5

Þá er komin ný dagssetning fyrir vinnuhelgina í Þórsmörk.

Eftir miklar og erfiðar rannsóknir gáfu ferðafélagstófararnir út eftirfarandi tilkynningu:

Frostið er farið úr jörðu í landi ferðafélagsins í Þórsmörk. Þó mun ekki vera óhætt að hefja framkvæmdir fyrr en um þriðju helgina í maí, nánar tiltekið þann 19. maí. Veðurhorfur eru mjög jákvæðar, enda hafa ásatrúartóftarar og aðrir efasemdartóftarar fært guðunum fórnir sem þeir eiga erfitt með að hafna.

Ferðafélagstóftararnir hafa einnig gefið út verkefnalista og hvetja þeir alla tóftara að lesa hann vandlega yfir, velja sér verkefni af listanum og undirbúa sig bæði líkamlega og andlega fyrir þau.

Vinnuferð í Þórsmörk - vor 2006

• Stígagerð
• Planki/brú yfir læk við Skáldagil (forarsvað eftir aurburð úr Tóftaragili)
• Setja pósta og merkingar (sjá skilti í gámi)
• Pússa og mála kerru ( eða fjarlægja )
• Traktor – laga eða koma til byggða
• Laga pípur – setja upp sturtubrennara
• Mála borð
• Skáldagil – ath ástand
• Mála kojubotna
• Skipta um dýnucover ( ath mál ) ...uhm...sennilega enska...wild guess, E.
• Undirbúa og hanna ratleik
• Gera úttekt á leiksvæði fyrir börn
• Göngubrúin – mála handriðið laga tröppur
• Athuga með rafmagnið í skála – hver er staðan
• Þvottavélarslanga
• Tvöfaldan vask í eldhús
• Hrófla upp hilluplássi í suður-eldhúsi
• Músarholur (fyrir Trausta)
• Málning er flögnuð vestan til (a.m.k.) á skála
• Mála handrið við Skáldagil
• Setja upp tjöld fyrir herbergi á suður- og norðurloftum
• Hreinsa eldstæði á aurunum (naglar og fleira rusl)
• Perur, gashylki, gaskveikjarar
• Fjarlægja skrúfu úr glugga á Suðurlofti (Ein skrúfa? Má ég? Evelyn)
• Sturtuhengi (úr þvotti)
• Stafjárn við dyrakarm skálavarðarherbergi
• Yfirfara krækjur og stormjárn (líka í Heiðukoti, vantar festu fyrir járnin)
• Formleg skírn á Tóftaragili og Helgasprænu
• Sólóeldavél í Heiðukoti í bæinn
• Frágangur á lofti Heiðukoti
• Ísskápur í Heiðukoti virkar ekki
• Hornlistar Heiðukoti
• Mála geymslukassa við Heiðukot


Munið að taka með ykkur útileiki og spil.

06 febrúar 2006

Tóftaramerkið - niðurstaða

Nú er komin niðurstaða í Tóftaramerkið.
Á þorrablótinu var tekin umræða um merkið og ákveðið eftir atkvæðagreiðslu sem féll á jöfnu, að vísa málinu til Merkistóftarans, sem kvað upp úrskurð um að Vörðufellslausa útgáfan, sú sem send var inn í keppnina skyldi verða merki Tóftara.

Merkið er komið í yfirskrift heimasíðunnar hér að ofan, og er búið að hafa samband við merkingarfyrirtæki um verð í merkingu á bolum, flíspeysum, derhúfum og rúðumerki í bíla. Sjáum hvað kemur út úr því.
- Gestur

30 janúar 2006

Vorferð í Þórsmörk

Búið er að taka frá 21-23. apríl fyrir vinnuferðina í Þórsmörk. Merkið við í dagbókina ykkar.

Tóftaramerkið

Örn tók að sér að tölvuvæða tillögu Bjarna merkistóftara og vildi hann koma með breytingatillögu við eigið verk og setja Vörðufellið inn á.

Skoðið og segið hug ykkar um þetta í athugasemdum við myndina.

16 janúar 2006

Þorrablót í Hólaskógi 3.-5. febrúar

Þá er ný hefð að skapast hjá Tófturum. Eins og kynnt var svo glæsilega á síðastliðnu jólboði, verður efnt til þorrablóts í Hólaskógi fyrstu helgina í febrúar.

Hólaskógur er stór upphitaður skáli með rafmagni frá Landsvirkjun og svefnplássi fyrir 70 - 80 manns. Kofinn er aðeins fyrir ofan Búrfell. Það ætti að vera fært fyrir alla bíla, en ef ekki þá verður selflutt frá afleggjarnum að skálanum. Þarna er allt til eldamensku og það eina sem vantar er matur - Þorramatur. Þeir sem ekki hafa konu til að vaska upp fyrir sig eða nenna því ekki sjálfir verða að taka með sér pappadiska og plastglös eða drekka af stút. Þó skálinn sé upphitaður þá er nauðsynlegt að taka með sér gæru eða eitthvað annað til að sofa undir eða í. Eða ofan á!

Þorrablótið sjálft byrjar klukkan 19.00 á Laugardagskvöldinu. Allir koma með sinn mat og drykk. Gaman væri ef menn eða fjölsyldur kæmu með heimatilbúin skemmtiatriði eins og á öllum alvöru þorrablótum. Það ætti nú ekki að vera erfitt fyrir svona vel gefið og skemmtilegt og söngelskt fólk eins og okkur. Fyrir utan nokkra :-)

Menn eru kvattir til taka dansskóna með sér... og taka uppáhalds tónlistina sína með sér og þeir sem kunna eitthvað á hljóðfæri eru beðnir að taka þau með sér.

Reynt verður að hafa eitthvað í boði fyrir alla aldurshópa, þó sér í lagi fyrir krakkana. Sögualdarbærinn verður hugsanlega opnaður fyrir okkur á laugardeginum.

Aðstaðan með einni nótt kostar 1.800 kr á mann og hálft gjald fyrir börn. Þeir sem ætla ekki að gista borga 500 kr. Ef aðsóknin verður góð, fáum við afslátt. Vinsamlegast athugið að ekki er hægt að greiða með greiðslukorti, né blíðu (Sigga mælir allavega ekki með því. Hún hefur sko séð staðarhaldarann) svo vinsamlegst takið með ykkur reiðufé.

Vonandi verður snjórinn ekki farinn, svo við getum tekið með okkur skíði og sleða.

Vinsamlegast staðfestið þátttöku hjá Siggu Garðars 4865606, Evelyn 5516112 eða Álfheiði 5878852, sem allra fyrst.

Skemmtilegt væri að sem flestir kæmu að blóta, heiðnir sem kristnir, ungir sem aldnir

Tóftaragil

Jæja, þá eru Tóftararnir komnir á landakortið.
Stór aurskriða féll úr Valahnjúk um daginn og skildi eftir sig heimikið gil, sem umsvifalaust var nefnt Tóftaragil.
Getið séð frétt um þetta á heimasíðu Ferðafélagsins með því að smella hér.

26 desember 2005

Sumarleyfisferð Tóftara 2006

Farið verður í Reykjafjörð á Ströndum 10.-14. júlí, sem er mánudagur til föstudags.
Siglt verður frá Norðurfirði, en siglingin tekur klukkutíma og korter og verður farið á nýjum 30 manna bát og farnar eins margar ferðir og þarf til að flytja alla, þannig að það eru engar fjöldatakmarkanir á ferðinni.
Auk þessara ferða sem farnar verða fyrir okkur verður báturinn í áætlanasiglingum þrisvar í viku, þannig að ef einhver þarf að fara fyrr eða koma seinna ætti það að vera hægt að einhverju marki.
Viðmiðunarverð verður að hámarki 15.000,- á fullorðinn, minna fyrir börn. Innifalið í því er siglingin, tjaldstæði og amk ein sameiginleg máltíð.
Á svæðinu er ótakmarkaður aðgangur að sundlaug, frábærar gönguleiðir í nágrenninu þar á meðal niður í fjöru og að Drangajökli og ýmislegt fleira.
Örfá pláss eru í skála sem möguleiki er að panta. Fyrstur kemur fyrstur fær.
Nánari upplýsingar verða birtar hérna á vefnum eftir því sem hlutirnir skýrast.
Skráning fer fram með því að senda póst á netfangið toftarar@hotmail.com fyrir 1. febrúar.

14 desember 2005

Skjaldarmerki Tóftara - hugmyndasamkeppni

Kæru Tóftarar,

Skjaldarmerki eða "logo" er eitt af því sem þarf að huga að þegar stórkostleg félög - eins og Tóftarar - verða að veruleika.

En sá galli er á gjöf Njarðar að ekkert slíkt skjaldarmerki er til. Þess vegna var ákveðið að efna til hönnunarsamkeppni til að fá hið eina sanna merki. Allir Tóftarar, jafnt ungir sem ungir í anda, eru beðnir að leggja sitt af mörkum og koma með tillögur sínar í jólaboðið.

Teikningarnar skulu vera merktar með leyninafni og þeim skilað á jólaboðinu í þar til gerðan kassa. Umsjónartóftarar munu sjá um að hengja þessi listaverk upp á vegg. Síðan fer fram leynileg kosning þar sem menn skrifa leyninafn listamannsins á miða. Úrslitin verða kynnt að lokinni tíu keppninni.

Sigurvegarinn hlýtur nafnbótina "Merkistóftari" og hafa menn látið lífið fyrir minna.

Nánari fyrirspurnum svara þær Sigga Garðars eða Evelyn.

Látið nú ljós ykkar skína !

25 nóvember 2005

Hveravallaferð helgina 2.-4. desember

Árni veðurtóftari er búinn að taka frá veðurstofuhúsið á Hveravöllum helgina 2.-4. desember. Þó svo að ferðin sé auglýst fyrst núna, þá hefur fyrirspurnum ringt inn og hafa menn áhyggjur af plássleysi. Ég er búinn að tala við umsjónarmann skálanna á Hveravöllum og eru þeir báðir lausir. Í veðurstofuhúsinu er pláss fyrir um 20 manns, en einhverjir þurfa að koma með eigin dýnur. Nóttin í skálanum kostar 1.600 kr., en Veðurtóftarinn er búinn að ganga frá greiðslu fyrir veðurstofuhúsið.

Ég legg til að menn sendi mér póst eða hringi í mig og skrái sig í ferðina, þannig að ég geti pantað nógu mörg rúm í skálanum.

Það verður boðið uppá mörg skemmtiatriði eins og t.d. leðjuslag og blautbolakeppni.

Ég vona að sem flestir sjái sér fært að mæta og taka þátt í keppninni.

Kveðja
Helgi
símar: 551 6112 - 896 9718
helgi@hagstofa.is

Haustferð í Langadal 7-9. október

Þórsmörkin tók fagnandi á móti fyrstu Tófturunm, með einstaklega fallegri kvöldbirtu, enda miklir höfðingjar þar á ferð. Seinna um kvöldið böðuðu stjörnunar sig í eindæma norðurljósadýrð. Þetta var föstudagskvöldið. Eftir þetta sást hvorki til sólar, né stjarna. Þetta var vissulega vinnuhelgi.

Krossá var ekki helsti farartálminn að þessu sinni, heldur var það Hvanná sem hafði grafið sig niður í þröngan farveg og áttu ýmsir bílstjórar erfitt með að finna réttu leiðina yfir, en allir komust þeir þó.

Eitt af fyrstu verkefnum tóftara var að búa til nýjan stíg að hluta frá göngubrúnni yfir Krossá inn að Langadal. Stigurinn sem fyrir var, þótti ekki lengur fær fyrir lofthrædda og þungbúna ferðalanga. Stígagerðin tókst með eindæmum vel, enda ekki von á öðru.

Að lokinni stígagerð var farið í að lagfæra og bera í stíga áleiðis inn í Langadal. Þar fóru Unnar og Dassi fremstir í flokki á fjórhjólum. Fjórhjólin fengu mikla athygli hjá ungu kynslóðinni og þurfi að koma upp kerfi til þess að allir fengu að hjálpa til við efnisflutningana og hlutu þau fljótt nafnið Fjörhjól.

Önnur verk sem ynnt af hendi voru: Þrif á Kojukroti, tilfærsla á upplýsingaskilti FÍ við Krossá, Smíðaður skápur utan um gaskúta hjá skálaverði og skemmd þrep fjarlægð svo fátt eitt sé nefnt.

Laugardagskvöldið var síðan haldin Kjötsúpuveisla, þar sem allir gátu étið eins þeir best gátu. Að vísu misstu þrjár ungar tóftarameyjar af matnum, en þar fór betur en á horfðist. En þessar ungu dömur hugðust skoða sig um í Sönghelli seinni part dags, en sennilega voru þær búnar að gleyma hversu slæmt skyggnið er eftir sólsetur.

En nóg um það, allir komu þeir aftur eins og segir í kvæðinu. Allir fóru ánægðir og glaðir heim á sunnudeginum. Ekki var vart við tröllaferðir að þessu sinni og má áætla að aðgerðir frá því um vorið hafi skilað árangri. Möguleiki er þó á því að tröllin hafi ekki enn lagt af stað til byggða, enda tíðin verið góð uppi á fjallabaki þetta haustið og eitthvað var um ferðamenn sem ekki höfðu skilað sér til byggða.

03 október 2005

Skráning og nýjar myndir

Minnum á skráninguna í Þórsmerkurferðina. Eins eru komnar nýjar myndir frá tjaldferðinni...

07 ágúst 2005

Tjaldhelgi 5.-7. ágúst

Gul tóftaraferð 2005

Fyrst í samfloti komu Sigga rauða og Steinþór feiti með yngsta gáfulega strákinn sinn. Með þeim komu Dassi lélegi og Hrafnhildur klunnalega á þvengmjóa jeppanum sínum.
Á eftir þeim komu Þórunn Helga og Erik horuðu og bleiku börnin þeirra.
Fúsi freknótti og Vallý asnalega með Þorstein frumlega voru í samfloti.
Auðunn og Harpa tapsáru ásamt sætu krökkunum þeirra komu seinna um skemmtilegt kvöldið.
Tjölduðu þessar fjölskyldur frábæru tjöldunum sínum í kærulausu fögru umhverfi kastlega Þjórsárdalsins.
Skrítnu krakkarnir fóru í köflóttan löggu og bófa.
Ennþá seinna um var byrjað að grilla sigursælan mat og var borðað ljóskulega mikið.
Ennþá seinna komu Gestur doppótti og bólótta hjákona hans einnig var auðunslega dóttir Gests með.
Um kvöldið fóru sumir í heilvitan tjaldvagninn hans Fúsa hundslega og fengu kakó með annarlegu rommi í hjá Vallý fyrir svefninn.
Um ömurlega morguninn komu svo Þór og Birna önnur á svanga nýja jeppanum.
Eftir prumpulegar mínútur kom hluti af tippalöngu Bryðjuholtsfólkinu. Samúel gat ekki slitið sig frá ljóta fjósinu nýja.
Bjarni og kúlulega fjölskylda komu svo þyppnast seinna.
Þegar Samúel var kominn úr langa fjósinu var haldið í grænan jeppa og hjólatúr inn í kræklótta skóginn að skoða brussulega gröf.
Þegar komið var aftur í tófratalega tjaldbúðirnar, voru Árný fótalipra og hennar nautnafulla fjölskylda, Unnar rósótti, Elínborg ótrúlega, Garðar lubbalegi og Geir geggjaði. Svo voru Fríða svengdarlega og hennar grandalausi maður að renna í gleraugnaglámslega hlað.
Efnt var til fótalausra Víking Kubbsleika að hætti grannra tóftara. Spilað var af mikilli heilagri útsjónarsemi, hnöttóttri áræði og krafti.
Var talað um að fiflalegasta besta liðið hefði ekki unnið, en fyrirliðinn var Þór hörmulegi ásamt Þorsteini greinilega og Pálma stórkostlega.
Hófst nú sveitalega mikil matargerð að hætti hógvægra tóftara, grillkjöt, kartöflur, rauðvín og rausnarlega eftirréttir.
Birtist svo Vigdís lúðalega Húsatóftamær í erfiðum kuldagalla, var hún full sein í stórmennskulega grillið. Krakkarnir fóru að grilla röndótta sykurpúða fyrir átökin í brjóslöngum útilegumannaleiknum.
Heyrst hefur að Gestur hræðilegi sem réði uppröðunni í liðin, hafi setti Heiðrúnu fullbókuðu til að eyðileggja liðið sem Unnar venjulegi var fyrirliði fyrir. Gestur bar fyrir sig að microsoft mjúki hefði raðað liðunum. Ekki er öll þreytuleg kurl komin til grafar í þessu nefstóra máli.

THE andfúll END

17 júlí 2005

Sumarferð um Syðra Fjallabak 11.-15. júlí 2005

Sunnudagur 10. júlí 2005
Stór hluti hópsins safnaðist saman í grunnbúðum að Húsatóftum um sunnudaginn. Farið var yfir helstu atriði ferðarinnar og þau atriði sem upp á vantaði þjálfuð. Helst var þörf á að rifja upp og þjálfa útilegumannaleik. Þeir sem misstu af þessum hluta ferðarinnar áttu við verulega mikla fötlun að stríða sökum þjálfunarleysis.

Mánudagur 11. júlí 2005
Um hádegi var áætluð brottför úr grunnbúðum. Bílar af ýmsum stærðum og gerðum söfnuðust saman í hlaðinu á Húsatóftum og hófst þá rögun á nýtum og ónýtum bílum til þessa brúks. Sem betur fer var hægt að koma öllum í nýta bíla og að loknum grjónagraut var lagt af stað. Farið suður fyrir jökla og stoppað í Vík. Farið var norður Öldufellsleið og stoppað við Hólmsárfoss. Fyrsta kodakstoppið af mörgum. Af Öldufellsleið var farið sem leið liggur yfir sanda og sprænur með þvílíkri fart og glæsileik að sandbleyturnar áttuðu sig ekki á því að verða á leið okkar á Mælifellssandi. Komum í frábæran skála Útivistar í Strút um 6 leytið. Margir tjölduðu og gerðu sig klára fyrir nóttina. Geir og fjölskylda hljóp upp Strút um kvöldið, meðan aðrir tóku til við boccia og að því loknu í útilegumannaleik. Eftir að gengið var til náða gerði veðrið mikinn usla og sprengdi tjald en hélt kuldabola að öðrum, þannig að einhverjir urðu undan að láta og flýðu inn í skálann um nóttina.

Þriðjudagur 12. júlí 2005
Eftir morgunmat tók hópurinn sig upp og hélt af stað í Álftavötn 11 gangandi en restin í bílum. Farið var sem leið lá framhjá Strútslaug, fyrir Svartahnjúksfjöll, meðfram Syðri-Ófæru og hún vaðin með stæl áður en gengið var í hlað. Helgi og Hörður komu á móti hópnum og veittu þeim félagsskap og andlegan styrk síðasta spölinn. Á meðan vörðu konur og börn skálann fyrir hestamönnum sem áttu leið um hlaðið og gengu börnin vasklega fram í að verja hestabrautina með nærveru sinni. Á meðan fylgdust karlmenn með úr fjarska með stóískri ró. Að því loknu var farið í göngutúr og menn fullvissuðu sig um að engin tröll væru á sveimi. Merkilegur steinbogi á Syðri-Ófæru var skoðaður og leitað að fisk. Að því ferðalagi loknu var farið með veiðarfæri í vatnið og fengin fullvissa fyrir því að engin fiskur væri í vatninu. Hér eins og alls staðar annars staðar í ferðinni var framkvæmd stöðug botnskoðun á lækjum, þannig að yfir skótau flóði, foreldrum og öðrum til mikillar ánægju.
Um kvöldið var farið í útilegumannaleik, enda nóg af felustöðum í hrauninu í kring.
Nóttin var mun friðsælli en hin fyrri og ekkert tjald brotnaði, en einhverjum varð vel heitt þegar morgunsólin yljaði tjöldunum.

Miðvikudagur 13. júlí 2005
Að dögurði loknum hjólaði afar ákveðinn hluti hópsins af stað til baka sem leið lá inn í Strút. Hinir óku að Rauðubotnum, hluti þess hóps tók stuttan göngutúr en þeir allra hörðustu eigruðu fótgangandi alla leið að kofanum í Strút.
Inni í kofa hófst mikil matargerð. Gunnar úrbeinaði læri og lagði töfra (krydd) á þau, meðan Dassi gróf holu og kveikti upp í kolum. Gestur hrærði í sósupotti og þau sem náðu í hníf fóru að skera grænmeti í salat. Úr þessum gjörningi varð þvílík veislumáltíð að ekki varð við jafnað amk að Fjallabaki þetta kvöld. Ungviðinu var att í þrautakeppni og útilegumannaleik að því loknu.

Fimmtudagur 14. júlí 2005
Upp reis enn einn dýrðardagurinn. Kappar höfðu sig til fyrir jöklagöngu, en ferðinni var heitið upp Sandfell og þaðan upp á Torfajökul. 17,5 km ganga, 800 m hækkun, gengin á 5 tímum, allt nákvæmlega mælt og skjalfest af GPS tæki Helga. Þeir eftir voru fóru í Strútslaug og mestu hetjurnar luku því baði með viðkomu í læknum við hliðina, en þetta var mikil ganga fyrir stuttar lappir, en þær dugðu drjúgt. Þegar jöklafarar komu að Strútslaug eftir að hinn hluti hópsins var nýfarinn, átti vistin í kaldari lauginni lítið skylt við þvott.

Þegar heim var komið beið kjötsúpa, soðin af beinunum frá því í fyrrakvöld og afgöngum af salatinu, í tveimur pottum og kom í góðan stað. Ofurkrafturinn í þeirri súpu hleypti krafti í berserkjagen ættarinnar og var ákveðið að fara í kappaferð í fossa sem voru í nágrenninu. Var æsingnum þvílíkt viðbrugðið að Geir náði ekki að snerta egghvassa steinana í árfarveginum þegar hann hljóp yfir þá og steypti sér í hylinn undir fossinum. Dassi, Hörður, Unnar, Helgi, Geir, Gestur og Tanja sönnuðu að þau höfðu Tóftarakappagen og Steinþór sýndi að hann hefur náð að þjálfa upp sömu hæfileika og er ljóst að stöðug og mikil nærvera við Tóftara hefur þar allt að segja. Meiri kjötsúpa tók úr mönnum hrollinn og hlóð batterýin fyrir útilegumannaleik þegar heim var komið.

Föstudagur 15. júlí 2005
Eftir að búið var að ganga frá um hádegið var haldið var af stað heim á leið vestur Mælifellssand.
Helmingurinn hélt beinustu leið heim um Fljótshlíð, en 4 bílar tóku því rólega og héldu framhjá Hvanngili, Álftavatni inn í Hungurfit og að bökkum Markarfljóts, þar sem veiðarfærin voru munduð og tekið til við veiðar, vikingkubb og át. Voru prófaðir nokkrir staðir en þegar 11 fiskar lágu í valnum var haldið heim á leið, reyndar með afar kappalegum lokahnykk, því á Markarfljóti var brú yfir mjótt gljúfur og sýndu Gestur, Hörður, Helgi og Unnar að ekki var um stundarkappalæti að ræða kvöldið áður og stukku með miklum hetjumóð af brúnni niður í ána.
Leiðin til baka niður í Fljótshlíð gekk hægt, þar sem drifið í einum bílnum (getið hvers?) gaf sig og þurfti að draga hann með einum og tveimur bílum alla leiðina heim. En með lagni hafðist það og um miðnætti var komið í byggð, í grunnbúðir klukkutíma seinna og þeir seinustu komu heim um 3 leytið.

Þórsmerkurferð 6.-8. maí 2005

Helga Garðarsdóttir hafði frumkvæði af því að Tóftarar tækju aðstöðu Ferðafélagsins í Langadal í fóstur. Um leið og umræðan fór af stað, hlaut hún góðan hljómgrunn og fyrsta vinnuferðin var farin 6-8. maí 2005. Veður var hrikalega gott allan tíman og kláraðist öll málning eins og dögg fyrir sólu og mátti sjá sem 5 penslar væru á lofti í einu. Kannski ekki skrítið, því færri komust að en vildu við vinnu, þannig að boccia, þrautabrautir og aðrir leikir urðu hluti af vinnuferlinu.

Skagfjörðsskáli var hreinsaður og blettaður að utan, gamalt gaslýsingarkerfi rifið niður og olíueldavélar hreinsaðar og hestburðir af ösku fjarlægðar úr brunahólfum. Vatnsbólið var hreinsað. Hluti af smiðum hópsins kláraði að klæða varðaskálann og málaragengið málaði hann á svipstundu þegar því væri lokið. Öll önnur hús voru máluð, bara svona í leiðinni, verandir líka eins og Jakobínan dugði til og brýr og handrið í leiðinni.

Af leiksviðinu var það helst að segja að yngri krakkarnir voru mikið í löggu og bófa, hinir fullorðnu fóru í boccia, þar sem Helgi Sig fór með sigur af hólmi eftir harða útsláttarkeppni.

Hápunktur ferðarinnar var á laugardagskvöldið, þar sem borðaður var góður matur og þegar fór að rökkva fór að örla á tröllum, sem sagt verður frá í sér pósti seinna.

Úr gjörðabók Tóftara

Verktakafélag Tóftara, kt. 7414-3309

Félagið yfirfór allar eigur F.Í. í Þórsmörk, svo sem: Skagfjörðsskála, salernishús, grillaut, Langadal (ruslaumsjón) og fleiri staði viðkomandi F.Í.
Þetta gerðist dagana 6.-8. maí 2005. Það var flaggað, skrapað, málað, þrifið, dýnur viðraðar, hreinsað eldavélar en aðal verkið,og erfiðasta, var að reka tröllin úr fjöllunum. Heppnaðist að flæma þau úr fylgsnum sínum, nema kannski tvö. Við þetta þurfti mikið hugrekki, svo yngstu Tóftararnir þoldu vart meira álag !
Á sunnudeginum var keppni í tímaþraut. Keppendur voru á aldrinum 8-43 ára. Órtúleg afrek, eins og sjá má hér fyrir neðan.
Þegar þetta er skrifað er flestum verkum lokið en til stendur að fara í gönguferð. Gott veður allan tímann.

No Tími/sek Nafn Aldur
1 20,0 Hörður 40
2 21,5 Elvar Már 23
3 23,3 Baldvin 22
4 23,4 Davíð Óskar 13
5 23,5 Una Dögg 15
6 23,6 Unnar 43
7 23,7 Auðunn 39
8 25,3 Kristófer 13
9 25,3 Örn 41
10 25,6 Bjarki 11
11 26,9 Helgi 35
12 29,1 Eva 8
13 30,5 Glódís 12
14 31,9 Geir 9
15 32,5 Guðjón Helgi 8
16 32,8 Karen 11
17 32,8 Elma Dís 8
18 33,6 Íris 14
19 39,9 Ylfa 7

16 júlí 2005

Vefsíða Tóftara

Hér með hefur göngu sína vefsíða Tóftara, afkomenda Vigfúsar Þorsteinssonar og Þórunnar Jónsdóttur, sem bjuggu á Húsatóftum á Skeiðum í Árnessýslu.

Í fyrstu verður vefurinn hér á þessari slóð, einfaldur og góður, en ætlunin er að koma upp sérstakri vefsíðu með meiri möguleikum í framhaldinu ef áhugi verður á. Væri þá hægt að hugsa sér ýmislegt, bæði ættfræðitengt, en ekki síður sögur af ættfeðrunum og okkur afkomendum þeirra og viðhengjum, sem eru jú ótalmargar og skemmtilegar.

En fyrst er rétt að sjá hvort áhugi sé á því að starfrækja svona síðu og ekki síður að ganga frá hlutum eins og gagnaöryggi og takmörkun aðgengis óviðkomandi að slíkum upplýsingum áður en farið er út í þá sálma, enda morgunljóst að búið verður að setja hana meira og minna í kvikmyndahandrit áður en við er litið ef við erum að birta þetta opinberlega. Ekki er heldur hægt að skrifa eins óhikað um hlutina og svo eru þetta bara upplýsingar sem koma engum nema okkur við, þótt annað fólk hefði kannski gott af því að fræðast um jafn frábært fólk og okkur.

Er vefsíðan því í fyrstu ætluð fyrir stuttar ferðasögur og skemmtilegheit sem við tökum okkur fyrir hendur sameiginlega og látum hana svo þróast áfram.

Stofnuð hefur verið sérstök myndasíða tengd þessari vefsíðu og er aðgangur að myndum á henni takmarkaður með lykilorði, sem er hægt að fá hjá Gesti í síma 898 4712 eða með því að senda tölvupóst á toftarar@hotmail.com. Ef fólk vildi skrifa inn á síðuna eða senda inn myndir væri það frábært og hafið þá samband við Gest varðandi það.

nembdin (dulítið kvefaður eftir síðustu ferð)